Fara í efni

Samsölu beyglur

06.11.2023

Að eiga Samsölu beyglur í frystinum getur einfaldað líf þitt og þægindin fá að ráða för, sérstaklega þegar tíminn er af skornum skammti. Tíminn er oft ekki bara knappur við undirbúning nestis, sem dæmi, þá fer oft ótrúlegur tími í það að velja sér eitthvað að borða.

Samsölu beyglur eru tilvaldar í koma sér af stað á morgnana, geta verið ljúffengar með góðu áleggi í hádeginu og þær eru ekki síður hentugar með kaffinu í eftirmiðdaginn eða sem snarl að kvöldi til.

Skoðaðu úrvalið og gríptu með þér Samsölu beyglu í næstu innkaupaferð!

Fínar beyglur

Beyglur með kanil og rúsínum

Beyglur með Jalapeno og osti

Beyglur með hörfræjum, sesam og birki

 

Af hverju eru beyglurnar ekki skornar alveg í gegn?

Þeirri spurningu hefur verið kastað fram hvort ekki sé hægt að skera beyglurnar alveg í gegn. Ef beyglurnar væru skornar alveg í gegn þyrfti að handpakka þeim í umbúðirnar og yrði það kostnaðarsamt sem myndi hækka verðið til neytenda. Vegna kostnaðarhagræðis er beyglunum vélpakkað í dag en vélin getur ekki tryggt að toppur og botn raðist alltaf saman ef helmingarnir væru lausir.

Farið varlega við að skera beyglurnar í sundur

Við hvetjum fólk almennt að fara gætilega að því að skera frosnar vörur, hvort sem það eru beyglur eða önnur matvæli. Eitt sem við viljum benda á þegar verið er að bjóða upp á beyglur er að nota ekki beitt áhald til að aðskilja helminga beyglunnar. Best er að þíða beygluna við stofuhita í 20 til 30 mínútur áður helmingar eru aðskildir og beyglan ristuð, það er einnig hægt að setja beygluna í örbylgjuofn á affrystistillingu í u.þ.b. 20 sekúndur (misjafnt eftir ofnum).