Fara í efni

Bæði hollt og gott

09.04.2026

Heilsusamlegt brauð inniheldur korn og fræ á borð við rúg, hafra og hörfræ. Fyrir þau sem vilja taka nokkrar heilsuæfingar í mataræðinu þá innihalda Lífskornabrauðin frá Myllunni þetta allt og meira til.

Það er svo að sjálfsögðu smekksatriði hvað við setjum á brauðið. Þau sem eru komin í aðhald eftir frábæra matarupplifun páskanna, þá er blaðsalat, soðið egg, kotasæla og rækjur á meðal þess sem mæla má með (smávegis malaður pipar yfir rækjurnar getur jafnframt gert gæfumuninn).

Fyrir aðra er Lífskornabrauð Myllunnar spurning um heilbrigðan kost og góða meltingu, ekki hvað síst í framhaldi af páskum. Enn aðrir elska Lífskornsbrauðin einfaldlega fyrir góða bragðið og grófa áferð. 

Það skiptir hins vegar alla máli að Lífskornabrauð Myllunnar bera öll skráargatið, samnorræna merkingu fyrir matvöru sem uppfyllir skilyrði um heilbrigðan lífsstíl eins og lesa má nánar um hér á vef Matvælastofnunar.

Kynntu þér heilsusamlegan kost með Lífskorni Myllunnar