Fara í efni

Baráttukveðja á 1. maí

30.04.2026

Alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins er fagnað þann 1. maí ár hvert, en dagurinn er sem kunnugt er tileinkaður réttindabaráttu launafólks.

Hefð er fyrir því að verkalýðsfélög og samtök launafólks skipuleggi kröfugöngur og útifundi um land allt þar sem rætt er um það sem hæst ber á góma hverju sinni í baráttunni fyrir bættum lífskjörum almennings.

Verkalýðsdagurinn er ekki aðeins dagur baráttu heldur einnig dagur samstöðu og samheldni launafólks. Í tilefni dagsins óskar Myllan öllu launafólki velfarnaðar á þessum mikilvæga baráttudegi.

Sú skemmtilega mynd sem er hér að ofan var tekin 1. maí árið 1942 og er af kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur.