Dagur jólatertunnar er hjá Myllunni 24. október ár hvert, en þá eiga jólaterturnar að vera komnar í allar matvöruverslanir. Smelltu hér og finndu þína uppáhalds og hlakkaðu til að fá þér sneið með ískaldri mjólk eða vel heitu kaffi.
Jólatertur Myllunnar eru eitt af því skemmtilegasta við aðdraganda jóla að margra mati, enda einstaklega ljúffeng áminning þess að senn styttist í jólin. Jólaterturnar eru til í fjórum frábærum útgáfum. Algengt er að fólk láti sig hlakka til og fjölmenni í matvöruverslanir til að byrgja sig upp fyrir jólin. Hörðustu aðdáendur kaupa þær jafnvel í miklu magni og geyma í frysti yfir allt árið, en einn af mörgum kostum Jólatertnanna er að þær geymast vel frystar.
Í ár kynnir Myllan jafnframt með stolti sérstaklega hannað kökubox fyrir grænu Jólatertuna. Tilefnið er að 20 ár eru liðin frá því að Myllan kom fyrst á markað með grænu tertuna. Boxið er einstaklega eigulegt og má mæla með því að nýta tækifærið og næla sér í eintak í næstu matvöruverslun.
Vinir Grænu Jólatertunnar
Þess má svo geta af þessu skemmtilega tilefni, að græna Jólatertan er ein sú allra vinsælasta af Myllu tertunum. Vinsældir hennar eru það miklar að hún á sérstaka aðdáendasíðu á Facebook sem heitir „Vinir Grænu jólatertunnar“. Þar deila aðdáendur, sem eru rúmlega tvö þúsund talsins, gleði sinni og árlegri eftirvæntingu eftir tertunni. Þá má svo einnig nálgast þar upplýsingar um hvar Jólatertan er til, því græna Jólatertan á það iðulega til að seljast upp. Eru þá góð ráð dýr og vilja Vinir Grænu Jólatertunnar því vera með það á hreinu í hvaða verslunum hægt er að fá tertuna, þegar svo ber undir.