Fara í efni

Fáðu meira fyrir sama verð

13.08.2026

Við höfum bætt einu Myllu smástykki við í pokann af  pizzasnúðum,  pizzastykkjum og ostaslaufum. Við það fjölgaði smástykkjum Myllunnar úr fjórum í fimm í hverjum poka og það allra besta er, að verðið hefur ekkert breyst þrátt fyrir 25% aukningu.

Myllu smástykkin eru alltaf góð - sem nesti, snarl, hádegismatur, með kaffinu eða bara þegar þig langar í eitthvað gott að narta í. Þau koma í handhægum umbúðum og bragðast eins og nýbökuð.

Njóttu þess að fá 25% meira fyrir sama sama verð og gríptu með þér poka af ljúffengum pizzasnúðum, pizzastykkjum eða ostaslaufum í næstu búðarferð. Þú þekkir þetta frábæra tilboð um 25% meira fyrir sama verð á umbúðunum.