Fara í efni

Fögnum margbreytileikanum

03.08.2026

Hinsegin dagar ná hámarki sínu nú um helgina með hátíðarhöldum víðs vegar um landið. Fer þar fremst í flokki gleðigangan í Reykjavík, sem verður hladin með pompi og prakt laugardaginn 8. ágúst.

Með þessu móti hefur réttindabaraáttu hinsegin fólks á Íslandi og fólki af öllum kynjum, kynhneigðum og lífsskoðunum verið sýnd samstaða í verki í sannkallaðri gleði og litadýrð. Hátíðarhöldin hafa vaxið og dafnað í hátt á þriðja áratug og draga nú að landinu tugþúsundir gesta sem vilja fagna ástinni í þeim fjölbreytileika sem hún birtist hjá hverjum og einum.

Hjá Myllunni er gömul hefð fyrir því að gera allt fyrir ástina og, trú þeirri góðu hefð, óskum við öllum gleðilegra hinsegin daga.