Heimagerð pizza er ekki aðeins einfaldur og þægilegur matur, heldur einnig frábær leið til að nýta með bragðgóðum hætti hvers kyns matarafganga. Í raun kemur á óvart hversu auðveldlega nýta má afganga sem pizzuálegg, hvort heldur úr jurta- eða dýraríkinu.
Pizzan þróaðist upphaflega á Ítalíu í aldanna rás, sem aðferð til að nýta einmitt matarafganga. Má því segja að hér sé um gagnreynda aðferð sé að ræða, til að halda niðri matarsóun, sem hefur verið vaxandi vandamál á Vesturlöndum og ein af undirrótum loftslagsvandans.
Í mjög mörgum tilvikum er það svo, að kæliskápur heimilisins lumar á ýmiss konar góðgæti sem orðið hefur afgangs í vikunni. Þar sem matur á það til að ýtast innar þegar ný innkaup bætast við, er um að gera að kanna annað slagið hvort eitthvað sé að safnast upp og sjá hvort ekki sé um upplagt pizzaálegg að ræða.
Nældu þér í pizzadeig Myllunnar og nýttu það sem er til í kæliskápnum fyrir heimgerða gúrmet pizzu. Kjöt, stakir hamborgarar eða pylsur eftir grill um helgina, fiskur, brauðálegg, kotasæla eða ostaendar. Allt getur þetta orðið að uppistöðu í gúrmet-útgáfu á föstudagspizzu.
Þá má í staðinn fyrir pizzasósu (eða sem viðbót með pizzusósunni) nota afganga af sýrðum rjóma eða grískri jógurt, auk þess sem nýta má ofþroskaða tómata í heimagerða pizzasósu, í bland við niðursoðna tómata, tómatkraft og pönnuristaðan hvítlauk ásamt öðru kryddi að eiginn smekk.
Grænmeti sem komið er á síðasta söludag, er jafnframt alveg tilvalið. Sumt grænmeti eins rótargrænmeti þarf að brytja og svissa áður á pönnu eða baka í ofni, en margt jurtakyns getur farið beint ofan á pizzuna.
Og þannig mætti lengi áfram telja. Í reynd er það bara ímyndunaraflið og innihald kryddskúffunnar hverju sinni, sem setur matseldinni mörk þegar heimagerð pizza er annars vegar.
Þá mælum við óhikað með pizzadeigi Myllunnar, sem þú getur skipt upp í fleiri smærri pizzur eða mótað í eins stóra. Það eina sem gott er að muna er að leyfa því að standa í 1-2 klst. við stofuhita áður en þú hefst handa. Einnig erum við með frosna pizzabotna í boði, sem eru seldir 10 saman.