Fara í efni

Frábærar viðtökur á nýjasta Lífskornabrauðinu

26.04.2018

Nýjasta Lífskornsbrauðið okkar: Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og kornum hefur vægast sagt fengið frábærar viðtökur, eins og nafnið gefur til kynna eru sjö tegundir af kornum og fræjum en um er að ræða hafraflögur, sólbólmafræ, hörfræ, rúgkjarna, graskersfræ, sesamfræ og spelthveiti sem gerir það að verkum að brauðið er sérstaklega þétt og saðsamt.

Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og kornum er að sjálfsögðu vegan en brauðið er einnig ríkt af trefjum. Brauðið inniheldur ekkert hvítt hveiti og ekkert ger en spelthveiti er notað í stað hvíts hveitis.

Gott hlutfall af góðri fitu má finna í Lífskornabrauðinu sem gerir það að frábærum kosti fyrir þá sem hugsa um heilsuna.

Við hjá Myllunni erum alsæl með nýja fjölskyldumeðlim Lífskornalínunnar en við erum einnig afar ánægð að sjá að aukin áhersla okkar á hollar og næringaríkar afurðir hljóti jafn góðan hljómgrunn meðal viðskiptavina okkar og raun ber vitni. Því viljum við þakka ykkur fyrir þessar frábæru viðtökur á Lífskorni – Sjö tegundum af fræjum og kornum.