Fara í efni

Uppskrift af kjúklingaborgurum: Hjördís frá Mömmur.is

22.05.2026

Við kynnum stolt gestapenna Myllunnar sem er engin önnur en Hjördís Dögg Grímarsdóttir, áhrifavaldur og eigandi síðunnar sívinsælu Mömmur.is. Hún kemur hér með dásamlega uppskrift af grilluðum kjúklingaborgara í hamborgara sætkartöflubrauði. 

Gómsætur kjúklingaborgari með sætkartöflubrauði

Það er frábært að nota sætkartöflubrauðin frá Myllunni til að búa til kjúklingaborgara. Kjúklingurinn er skorinn í þunnar sneiðar og síðan mareneraður áður en hann er grillaður. Sætkartöflubrauðin eru hituð og síðan smurð með chilli-mæjó og fyllt með káli, tómatsneið, gúrkusneiðum, avakadó, rauðlauk og beikoni. Virkilega gómsætur kjúklingaborgari sem borinn er fram með sætkartöflufrönskum.  

Uppskrift

Brauð:

  • 8 sætkartöflubrauð

Kjúklingur:

  • 4 kjúklingabringur (skornar í tvennt)

Marinering:

  • 200 ml teriyaki-sósa með engifer og sesam
  • 100 ml ólífuolía
  • 3–4 hvítlauksgeirar (pressaðir)
  • 1 tsk paprikukrydd
  • 1 tsk salt
  • ½–1 tsk hvítlauks- og piparkrydd

Meðlæti (eftir smekk):

  • Kál
  • Buff tómatar
  • Gúrka í sneiðum
  • Rauðlaukur í þunnum sneiðum
  • Avókadó
  • Grillað beikon
  • Chilli mæjónes eða hamborgarasósa

Aðferð:

  1. Hrærið saman hráefnum í marineringuna og leggið kjúklinginn í hana í a.m.k. 30 mínútur – helst lengur.
  2. Grillið kjúklinginn þar til hann er fulleldaður 
  3. Grillið sætkartöflubrauðin í stutta stund á grillinu
  4. Setjið borgarana saman með kjúklingi, sósu og meðlæti eftir smekk.
  5. Berið fram með stökkum sætkartöflufrönskum.

Við þökkum Hjördísi fyrir þessa girnilegu uppskrift! Þið getið fylgt henni á samfélagsmiðlum undir Mömmur.is