Í tilefni 20 ára afmælis Grænu jólatertunnar hefur Myllan framleitt gjafabox sem dreift var í verslanir í gær um allt land. Unnendur jólatertunnar tóku greinilega vel við sér því gjafaboxin kláruðust samdægurs í mörgum verslunum.
„Móttökurnar hafa verið ævintýralegar. Græna jólatertan er auðvitað gríðarlega vinsæl og við vitum það. En við reiknuðum hreinlega ekki með því að öll framleiðslan af gjafaboxinu, með Grænni jólatertu í, myndi nánast klárast samdægurs,“ segir Svanhvít Guðmundsdóttir verkefnastjóri hjá Myllunni.
„Um leið og við hjá Myllunni þökkum viðskiptavinum okkar þessar einstöku móttökur verðum við því miður að hryggja þá sem ekki hafa komist yfir gjafabox ennþá með þeim fréttum að birgðirnar eru líklegar til að klárast um helgina. Fleiri box eru ekki væntanleg í bili."