Fara í efni

Mundu eftir Myllu brauði í útileguna

01.07.2022

Útilegu tímabilið er komið á fullt. Stór bílastæði fyllast af hjólhýsum um leið og lóan er mætt og nú er fólk farið að dusta rykið af tjöldunum líka. Framundan eru bestu mánuðir sumarsins með meiri hita, stilltu veðri og eftirminnilegum kvöldvökum.

En útilegan er ekkert án rétta nestisins og þar er eins gott að muna að skipuleggja sig og tryggja sér allt sem þarf fyrir góðan útilegu túr. Grillið er líka alltaf með í för þannig að til kvölds og morgna þarf að vera til nóg af brauði.

Fyrir morgunmatinn er nauðsynlegt að eiga nóg af uppáhalds brauðinu ykkar. Heimilisbrauðið er auðvitað sívinsælt og hentar vel í bæði ristað brauð (sem hægt er að rista á gasi) sem og í samlokur til að hafa með sér út í skoðunarferðir dagsins. Hér má finna fjölda uppskrifta sem geta verið handhægar fyrir útileguna. Munið að Myllubrauðin fást um allt land líka.

Fyrir kvöldið borgar sig að eiga alltaf hamborgarabrauð og pylsubrauð því ef viðrar vel þá eru grillarar landsins á tjaldsvæðum landsins fljótir að grípa í eitthvað fljótlegt eins og hamborgara og pylsur. Þá geta ferskbökuðu brauðin okkar verið fljót að klárast.

Gleðilegt ferðasumar og góða ferð!