Einhver besta byrjun á deginum er ristuð beygla með osti og í hádeginu er fátt sem gefur beyglusamloku með eggjum, skinku og salti eftir, enda er þétt beyglubrauðið bæði bragðgott og mjúkt í sér. Þá mælir það ekki síður með beyglunni að hún er með nokkuð sem nefna mætti innbyggða gæðatryggingu.
Margir hafa eflaust velt því fyrir sér af hverju beyglan er hol í miðjunni, hafi þetta gat á annað borð einhvern tilgang? Við fyrstu sýn kann svarið að virðast augljóst, en þökk sé þessum eiginleika er unnt að stafla beyglum hverri ofan á aðra á hald eins og tréstöng, líkt og algengt var á miðöldum og gert er enn í dag við hringlaga hrökkbrauðið sem margir kannast við frá Svíþjóð eða bakarakringlur í Danmörku.
Gatið á beyglunni á sér þó enn djúpstæðari skýringu sem tengist beinlínis framleiðslugæðum brauðsins með beinum hætti. Ástæðuna má rekja til þess að deigið er rakaminna og þéttara í sér en í venjulegu brauði og af þeim sökum er hætt við misbökun, með undirbakaðri miðju og ofbökuðum brúnum - nema miðjuhlutinn sé einfaldlega tekinn úr og málið þar með leyst.
Óhætt er því að segja, að beyglan sé með innbyggða gæðatryggingu, eins konar gæðagat, sem stuðlar að jöfnum og bakstri og frábærum bragðgæðum allan hringinn.
Vð mælum því óhikað með bragðgóðri beyglu allan hringinn. Myllan er með fjórar frábærar gerðir, þar á eðal með hörfræjum, sesam og birki og beyglur með jalapeno og osti. Hvaða beygla finnst þér best?