Fara í efni

Góður og handhægur kostur

23.06.2026

Í dagsins önn getur verið erfitt að finna tíma til að útbúa gott og saðsamt nesti, ekki hvað síst á sumrin þegar við viljum njóta útiverunnar eins lengi og hægt er. Myllan býður ýmsa góða kosti sem eru einmitt tilvaldir í nesti fyrir daginn.

Pizzasnúðar frá Myllunni eru alltaf jafn vinsælir, enda bæði ljúffengir og einstaklega bragðgóðir. Á það ekki hvað síst við um yngstu kynslóðirnar og eru þeir því bæði handhægur og hentugur valkostur í nestisboxið hjá þeim á sumarnámskeiðinu.

Þá getur ekki síður verð gott að fá eitthvað sætt með í nestisboxið, hvort heldur hjá unga fólkinu eða þeim sem eldri eru. Kleinurnar frá Myllunni slá alltaf í gegn og setja þannig punktinn skemmtilega yfir i-ið í nestispásunni.

Gríptu með þér poka af pizzasnúðum og kleinum frá Myllunni næst þegar þú ferð að kaupa í matinn. Það er alltaf gott að eiga handhægan og bragðgóðan kost í nesti fyrir heimilisfólkið.