Fara í efni

Græna laufið er vegan

05.05.2026

Auðvelt er að finna gómsætt og nærandi vegan Myllu brauð, hvort sem þú ert 100% vegan eða kýst að velja vegan í bland við aðra matvöru. Vegan brauð Myllunnar má þekkja á græna laufinu og eru þau fáanleg í öllum helstu matvöruverslunum.

Í vegan flokki Myllunnar má meðal annars finna Heimilisbrauð, Heilhveitibrauð, Hveiti samlokubrauð, Speltbrauð, Fjölkornabrauð, Fitty samlokubrauð, Lífskornabrauð, Danskt rúgbrauð og pylsubrauð og hamborgarabrauð.

Á vefnum okkur getur þú kynnt þér úrvalið af vegan brauðmeti Myllunnar – allt á einum stað.

Komið hefur mörgum þægilega á óvart að sjá úrvalið af vegan brauðum hjá Myllunni.