Fara í efni

Grillaðu pizzu um helgina

13.08.2026

Grilluð pizza kemst næst því að bragðast eins dásamlega og eldbökuð ítölsk pizza. Fyrir þau sem elska eldbakaðar pizzur er því um að gera að nota grillið, ekki hvað síst á sumrin þegar grilltíminn stendur sem hæst. Myllu pizzadeigið er einstaklega bragðgott og hentar vel fyrir þessa einstöku pizzugerð þar sem stökkur og bragðgóður botn er lykilatriði.

Það er á margan hátt auðveldara en marga grunar að grilla pizzu. Leyndarmálið á bak við þessa aðferð er pizza-steinn, sem er fáanlegur í mörgum verslunum, en steinninn gerir pizzuna stökka og veitir hennir ómótstæðilega eldbakað bragð.

Gott er að hafa bökunarpappír undir botninum svo að hann festist ekki við steininn. Athugaðu jafnframt að hita grillið vel áður en pizzan fer á steininn. Ákjósanlegur er hiti er á bilinu 300-350°C.

Þegar búið er að útbúa pizzuna og réttu hitastigi er náð, er ekkert annað eftir en að setja hana á steininn og grilla í um 10 mínútur.

Hér að neðan eru þrjár frábærar uppskriftir fyrir grillaða pizzu, sem þú getur prófað eða notað sem innblástur fyrir nýjar uppáhaldsuppskriftir. Það allra skemmtilegasta við pizzugerð er, að allt er leyfilegt og um að gera að prófa sig áfram í áleggsgerðinni. Þá geta matarafgangar oft orðið að frábæru áleggi, sem gerir pizzu jafnframt að skemmtilegri leið til að draga úr matarsóun.

Hawaii pizza

Kjöt- og ostaveisla

  • 1 stk. pizzadeig frá Myllunni
  • 2 dl. Beikonkurl
  • 1 pakki pepperoni
  • 1 pakki Hunangsskinka
  • ½ dós rjómaostur
  • 1 stk. niðurskorin Mexíkóostur
  • 2 dl. pizza-sósa
  • Pizzaostur

Vegan

  • 1 stk. pizzadeig frá Myllunni
  • 1 stk. niðurskorin rauðlaukur
  • 2 stk. rauðar niðurskornar paprikur
  • ½ askja niðurskornir sveppir
  • Vegan kjúklingur
  • Vegan ostur
  • 2 dl. Vegan pizza-sósa