Valentínusardagurinn er orðinn fastur liður á Íslandi í febrúar og er sérstaklega vinsæll meðal para. Gjafir á borð við blóm, ástarkort, súkkulaði og jafnvel rómantískar máltíðir eru algengar. Dagurinn er þó ekki eingöngu fyrir ástfangið fólk, heldur hefur hann einnig þróast í að vera dagur vináttu og kærleika, þar sem fólk sýnir öðrum þakklæti og hlýhug.
Þrátt fyrir að vera tiltölulega ný hefð á Íslandi hefur Valentínusardagurinn sannarlega fundið sér stað í hjörtum margra Íslendinga.
Ljúffengu smáu kökurnar frá Myllunni eru tilvaldar að njóta við hvert tækifæri sem gefst og er frábært að fagna á sérstökum dögum líkt Valentínusardeginum. Eins og nafnið gefur til kynna eru kökurnar smáar, flauelsmjúkar og einstaklega bragðgóðar. Kökurnar eru alltaf fjórar saman í pakka svo auðvelt sé að grípa þær með í saumaklúbbinn, útivistina eða hafa við hönd í kaffi- eða nestistímanum.
Fyrst hófum við sölu á smáum möndlukökum og í kjölfarið var vöruúrvalið aukið til að mæta óskum viðskiptavina sem höfðu áhuga á að fá fleiri gerðir af smáum kökum. Þá komu til sögunnar smáar súkkulaðikökur með súkkulaðiperlum, smáar Nutella-kökur og smáar kökur með sítrónubragði.
Það má líka minna á að smáu kökurnar okkar eru sérstaklega vinsælar hjá yngri kynslóðinni. Það er vinsælt að fá smáar kökur með í sparinestið í skólanum, á afmælisdaginn eða sem auka gotterí í kaffitímanum. Smáar kökur eru fullkomnar við þitt eigið tilefni. Kipptu endilega með þér pakka í næstu innkaupaferð og njóttu!