Fara í efni

Hver er uppáhalds Myllu Jólatertan þín?

15.10.2026

Nú þegar styttist í jólin getum við farið að hlakka til að gæða okkur á Jólatertum Myllunnar. Hver er þín uppáhalds?

Jólatertur Myllunnar eru einstaklega ljúffengar og algjörlega ómissandi með góðu kaffi eða ískaldri mjólk, nú þegar dagarnir verða sífellt styttri og jólin nálgast.

Íslenska jólatertan eða randalínan á sér langa sögu sem rekja má allt aftur til konungshalla Vínarborgar á 18. öld. Hingað til lands barst þessi skemmtilega hefð frá konungsins Kaupmannahöfn og upphaflega sem hringlaga terta.

Það form þótti þó fljótlega fremur óhentugt í samhengi íslensku torfbæjanna og segja má sigurganga ferhyrndu randalínunnar hafi hafist upp úr miðri 19. öld með bakstri á ferhyrndri og mun hagkvæmari lagköku að allri gerð. Hringlótt kökuform hafa líklega verið fágæt hér á landi á þessum tíma, svo að dæmi sé tekið. Þá taka rendurnar taka sig óneitanlega mun betur út í ferhyrndri kökusneið en þríhyrningslaga.

Það sem gerði randalínuna að hinni fullkomnu jólaköku var að hún verður bara betri með tímanum, en eftir því sem sultan fær að samlagast tertubotnunum lengur verður kakan bara mýkri og meira djúsí. Það gerði að verkum að hægt var að baka hana í góðum tíma fyrir jólin.

Íslenski jólabaksturinn þróaði jafnframt með sér tvenns konar útgáfur af jólatertum eða brúna lagtertu annars vegar sem er með kanil, negul og kakói og hins vegar þá ljósu sem í sinni fínustu útgáfu skartaði gjarnan sveskjusultu. Ljósa randalínan hefur síðan einnig verið þekkt sem Vínarterta, í takti við uppruna tertunnar.

Á þessari gömlu hefð byggir Myllan jólatertuhefð sína og býður tvær ljúffengar tegundir af annars vegar brúnum og hins vegar ljósum jólatertum; í rauðu umbúðunum er hin sígilda brúna jólaterta með smjörkremi og sultu. Í þeim grænu er ljúffeng brún jólaterta eingöngu með smjörkremi og í hvítu umbúðunum er ljós randalína með ljúffengu sveskjumauki Myllunnar. Þá er ótalin sú bláa, lungamjúk og ljúffeng ljós jólaterta með dásamlegri rabarbarasultu.

Smakkaðu þær allar og finndu út hver af þessum fjórum frábæru randalínum er uppáhalds Myllu Jólatertan þín!