21.10.2026
Það styttist í dag jólatertunnar þann 24. október en þá á hin sívinsæla og sígilda jólaterta að vera komin í allar verslanir hringinn í kringum landið. Í ár bjóðum við líka fallegt geymslubox fyrir jólatertuna í tilefni þess að hún hefur núna boðað jólin í 20 ár. Vegna mikils álags á símaborðinu okkar viljum við láta ykkur vita að jólatertuboxið verður komið í verslanir á morgun en ekki er hægt að nálgast geymsluboxið beint hér hjá okkur. Því verður semsagt eingöngu dreift í verslanir - á morgun - og athugið að um takmarkað upplag er að ræða.