Fara í efni

Veldu þína uppáhalds Jólatertu fyrir jólin!

18.12.2019

Jólatertan á sér langa sögu og ef farið er djúpt í söguna fer maður á flakk, frá Vínarborg til Kaupmannahafnar og vestur um haf í byggðir Vestur-Íslendinga. Hefðin að borða jólatertu festi sig í sessi á Íslandi og í dag er lagkakan frá Myllunni ómissandi um jólin og því er tilvalið að finna til skemmtilega jólatónlist, hella upp á rjúkandi heitt kaffi eða hella ískaldri mjólk í glas, og fá sér sneið af nýbakaðri og ljúffengri Jólatertu frá Myllunni. Þannig kemstu örugglega í ljúft jólaskap á síðustu dögum aðventunnar. Myllu Jólaterturnar fást í næstu verslun um land allt. Kauptu þér ljúffenga Jólatertu frá Myllunni í næstu verslun.

Við hjá Myllunni bjóðum upp á fjórar ljúffengar tegundir af jólatertum; sú í rauðu umbúðunum er hin sígilda brúna jólaterta með smjörkremi og sultu. Í þeim grænu leynist ljúffeng brún jólaterta með smjörkremi og í hvítu umbúðunum er hvít randalína með ljúffengu sveskjumauki Myllunnar. Sú nýjasta í línunni er bláa jólatertan. Hún er lungamjúk og ljúffeng hvít jólaterta með rabarbarasultu. Smakkaðu þær allar og finndu út hver þín uppáhalds Myllu Jólaterta er!