Þegar helgin nálgast grípur marga lúmsk löngun í safaríkan hamborgara. Myllan er með þrjár gerðir af frábæru hamborgarabrauði sem geta gert þessa helgarmáltíð enn skemmtilegri og fjölbreyttari eða kartöflubrauð og sætkartöflubrauð og síðan góða gamla hamborgarahveitibrauðið.
Með því að auðga hamborgarabrauðið með kartöflum breytast eiginleikar og áferð brauðsins að nokkru leyti. Það verður þéttara í sér og rakara og drekkur síður í sig safann úr millilögum hamborgarans. Það helst þurrara eða verður ekki eins blautt eins og einhver orðaði það. Svo eru þau til sem finnst það frekar glatað og vilja gjarnan að brauðið drekki í sig kjötsafann. Þá skiptir þetta ekki öllu máli hjá mörgum, sem finnst hvoru tveggja jafn gott, en eru til í tilbreytingu annað slagið, eins og til dæmis sætkartöflubrauð.
Það er því um að gera að bjóða bæði kartöflu og venjulegt, ef áherslurnar eru breytilegar við matarborðið hvað hamborgarabrauðið snertir. Gerðu hamborgarmáltíðina enn skemmtilegri og fjölbreyttari með tveimur eða jafnvel þremur gerðum af Myllu hamborgarabrauði.