Lóan er komin að kveða burt snjóinn og leiðindin, eins og segir í hugljúfu ljóði Páls Ólafssonar. Koma vorboðans hugaljúfa minnir okkur á ljúfar tækifæristertur Myllunnar sem kveða leiðindin burt ekkert síður.
Samkvæmt þjóðtrúnni er lóan mikilvægasti vorboðinn á Íslandi. Alþekkt ljóð Páls Ólafssonar, „Lóan er komin að kveða burt snjóinn", lýsir vel þessari stemningu, þegar eftirvæntingin eftir sumri og sól fer vaxandi með degi hverjum.
„Kveða burt leiðindin, það getur hún“, segir jafnframt í ljóðinu, með vísan í hefðbundið harðræði vetrarins eins og skammdegi og kulda.
Segja má að lóan sé sannkallaður vorboði, en sem farfugl kemur hún snemma til landsins í fyrri hluta mars og fer seint eða ekki fyrr en í nóvember, er hún flýgur til vetrarheimkynna sinna sem teygja sig allt frá Írlandi til Marokkó í suðri.
Það getur því liðið talsverður tími frá komu vorboðans og þar til sumarið lætur á sér kræla fyrir alvöru.
Tækifæristertur Myllunnar eru ekki aðeins fáanlegar í þremur mismunandi útfærslum, heldur eru þær alltaf freistandi og bragðgóðar. Þettta hnossgæti er þess vegna frábært bragð gegn hvers kyns leiðindum, sem getur líkt og vorboðinn hugljúfi kveðið burt leiðindin, þegar við fögnum sumarkomu.
Tækifæristertur Myllunnar skiptast í sukkúlaði-, karamellu- og gulrótartertur og eru fáanlegar í öllum helstu matvöruverslunum. Grípu með þér þá tækifæristertu sem þig langar mest í, næst þegar þú verslar í matinn.