Fara í efni

Leist ekkert á gúrkubrauðið

10.03.2026

Okkur langar að vekja athygli á skemmtilegri umfjöllun á vef Myllunnar, þar sem skyggnst er að tjaldabaki við upptökur á 30 ára afmælisauglýsingu Myllu heimilisbrauðsins. Á meðal viðmælenda er lítla stelpan sem nælir sér í bita af gúrkubrauði í upphaflegu auglýsingu. Nú 20 árum síðar, rifjar hún upp að henni hafi ekkert litist á gúrkuna á brauðinu. Það hafi hins vegar reynst hið mesta hnossgæti og verið í miklu uppháhaldi hjá sér síðan.

Upphaflega auglýsingin um Myllu heimilisbrauðið var gerð árið 2005 og Inga Lind Bjarnadóttir, sem lék litlu stúlkuna, er sjálf orðin móðir. Reyndar er hér um alvöru endurgerð að ræða að því leyti, að Inga Lind leikur nú mömmuna í auglýsingunni.

Vart er hægt að hugsa sér fallegri bakgrunn en Skriðuklaustur og segja má að þetta sögufræga höfuðbýli austur í Fljótsdal njóti sín vel með Gunnarshús í forgrunni auglýsinganna um Myllu heimilisbratuð. Einmuna veðurblíða sveipar auglýsinguna allt að því ævintýraljóma.

En, hvers vega var ákveðið að endurgera upphaflegu auglýsinguna. Því svarar Svanhvít Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í markaðsdeild Myllunar, til að skilaboðin eigi enn svo vel við og upphaflega auglýsingin sé að því leyti tímalaus. Í nýjum og glæsilegum búningi má þannig undirstrika að sígilda stöðu Myllu heimilsbrauðsins sem hollan og góðan valkost á degi hverjum.

Þess má svo geta, að í myndbandi er einnig rætt við Erlend Sveinsson, leikstjóra og Skúla Björn Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumann Gunnarsstofnunar, menningar- og fræðaseturs á Skriðuklaustri.