Gerðu hamborgarann enn girnilegri og bragðmeiri með Lífskornabollum Myllunnar.
Nú, þegar sumarið stendur sem hæst, er grilltíminn í algleymingi. Á meðan hamborgarar snúast að miklu leyti um gómsætt áleggið, sem lagt er á milli brauðsins, þá er ekki síður mikilvægt að huga að sjálfu brauðinu.
Við getum heilshugar mælt með hollu og bragðgóðu Lífskornabollunum okkar með heilhveitikorni og rúgi. Gott er að hita Lífskornabollurnar aðeins á grillinu áður en þú setur kjöt eða jafnvel fisk á milli brauðhelmingana ásamt öllu góða og holla grænmetinu og sósu eftir smekk. Girnilegt á það að vera og bragðgott.
Með Lífskornabollunum verður hamborgarinn bæði næringarlega séð betri og bragðmeiri. Gerðu vel við þig og þína og gríptu bragðgóðu og hollu Lífskornabollurnar næst þegar þú kaupir í hamborgara á grillið.