Fara í efni

Heil fjölskylda af Lífskornabrauði Myllunnar

20.07.2018

Hægt er að velja um fimm mismunandi tegundir af Lífskornabrauðum frá Myllunni. Lífskornabrauðið í rauðu umbúðunum er heilkornabrauð með lágu hlutfalli fitu, sykurs og salt en brauðið er fullt af næringarríkum trefjum. Lífskornabrauðið í grænu umbúðunum inniheldur sólblómafræ og hörfræ en Lífskornabrauðið í appelsínugulu umbúðunum er ríkt af heilkorni, chia-fræjum og tröllahöfrum. Lífskornabrauðið í fjólubláu umbúðunum er gert úr íslensku byggi frá Þorvaldseyri og spríruðu rúgi. Einnig er hægt að fá Lífskornabrauðin í appelsínugulu og rauðu umbúðunum í bollum.

Nýjasta viðbótin í Lífskornafjölskyldunna kom fyrr á árinu en þá kynntum við til leiks Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og kornum. Eins og nafnið gefur til kynna inniheldur brauðið sjö tegundir af fræjum og kornum, þá hafraflögur, sólblómafræ, hörfræ, rúgkjarna, graskersfræ, sesamfræ og spelthveiti. Lífskorn – Sjö tegundir af fræjum og kornum er að sjálfsögðu vegan og inniheldur brauðið ekkert ger eða hvítt hveiti.

Gerðu vel við þig og gríptu þitt uppáhalds Lífskornabrauð næst þegar þú ferð í verslun.