Útilegu tímabilið er komið á fullt og eru tjaldsvæði víðs vegar um landið nú þétt skipuð af tjöldum og ferðavögnum. Við erum að upplifa bestu mánuði ársins, þar sem margir kjósa helst að elta sólina með útilegudótið í skottinu eða ferðavagninn aftan á bílnum. Þetta tími útiveru og góðra minninga í félagsskap ættingja og vina.
Besta útilegan er þó oftar en ekki sú þar sem rétta nestið er í boði og það er því um að gera að undirbúa innkaupin vel, svo að allt sé til staðar fyrir góða og vel heppnaða útilegu.
Fyrir morgunmatinn er nauðsynlegt að eiga nóg af góðu brauði. Heimilisbrauðið Myllunnar er í uppáhaldi hjá mörgum og hentar vel bæði ristað á gasi sem og í samlokur fyrir skoðunarferðir dagsins.
Þá er ekki síður nauðsynlegt að eiga dunamjúk og bragðgóð hamborgarabrauð og pylsubrauð fyrir kvöldið. Þegar vel viðrar eru grillarar landsins fljótir að koma upp grilli á tjaldsvæðinu fyrir og dýrindis hamborgara og pylsur - sem bragðast aldrei betur en einmitt í útlegu.
Við mælum því óhikað með því að þú munir eftir brauðinu fyrir útileguna. Mylluvörurnar fást í helstu matvöruverslunum um land allt.
Góða ferð!