Fara í efni

Njóttu þess að jólin eru í nánd

27.10.2026

Skapaðu notalega stemningu með Myllu piparkökudeiginu og njóttu þess að jólin eru í nánd. Einstaklega bragðgóðar og ljúffengar og svo ilma piparkökurnar lika svo vel nýbakaðar. 

Þá eru þær einnig fljótalegar í bakstri, en Myllu Piparkökudeigið þarf aðeins að sneiða niður á plötu, sem fer síðan beint inn í ofn. Það tekur ekki nema nokkrar mínútur að baka hverja plötu, hversu margar ræðst af þykktinni sem deigið er sneitt niður í.

Þegar nær dregur jólum, einfaldar Myllu piparkökudeigið jafnframt lífið og gerir jólaundirbúninginn svo miklu notalegri, ekki hvað síst þegar piparkökuilmurinn tekur að berast út um allt. Þá er eitthvað alveg sérstaklega jólalegt við það að taka deigið úr fallega hönnuðum jólaumbúðunum.

Þegar kökurnar eru bakaðar er síðan komið að lang skemmtilega hlutanum, sem er að skreyta. Glassúr má auðveldlega hræra saman á augabragði, auk þess sem hann fæst tilbúinn í sprautubrúsum. Fyrir þau sem vilja gera sinn eiginn þá er uppskrift að einföldum glassúr hér fyrir neðan. Það má síðan einnig búa til litaðan glassúr með því að bæta út í uppskriftina gulum, rauðum, grænum eða bláum matarlit.

Dátt sem toppar jólastemminguna með Myllu Piparkökudeiginu, hvort heldur glóðvolgar eða glassúrskreyttar. Gríptu Myllu piparkökudeig með þér í næstu búðarferð.

Einfaldur glassúr:

  • 1 bolli flórsykur
  • 1–2 msk vatn eða sítrónusafi
  • Smá matarlitur ef vill (það er skemmtilegt að nota nokkra mismunandi liti og leyfa börnunum að spreyta sig við skreytingarnar).

Hræra þar til áferðin verður mjúk og glansandi.

Kynntu þér allar jólavörur Myllunnar og finndu þína uppáhalds.