Fara í efni

Nýtt - Myllu súrdeigsbrauð

22.05.2026

Nýbakað súrdeigsbrauð er nú fáanlegt hjá Myllunni. Þessi frábæra nýjung er með spíruðum rúgi sem veitir brauðinu alveg einstaka áferð. Í boði eru bæði fín og gróf Myllu súrdeigsbrauð.

Spíraður rúgur er ævagömul aðferð sem veitir brauði aukinn raka og mýkt. Myllu súrdeigsbrauð er því nýbakað, þegar þú færð það hendur, og með þessa einstöku áferð sem gerir súrdeigbrauðin að þeim frábæra kosti sem þau eru, í alveg flauelskenndu formi.

Auk spíraða rúgsins, eru Myllu súrdeigsbrauðin stútfull af hollustu jurtaríkisins, eins og heilkorna heilhveti og rúgkjörnum. Í grófa Myllu súrdeigsbrauðinu eru auk þess hörfræ og sólblómafræ, svo að dæmi séu tekin.

Margt getur mælt með súrdeigsbrauði sem okkar daglega brauði, enda skipar það sérstakan sess innan brauðfjölskyldunnar.

Súrdeigsbrauð fer almennt betur í maga þar sem gerjunartími þess brýtur niður glútenið í hveitinu. Þá gerir sýran í brauðinu jafnframt að verkum, að það geymist iðulega betur en venjulegt gerbrauð og getur súrdeigið þannig virkað eins og náttúrulegt rotvarnarefni - svo að nefndir séu nokkrir af þeim góðum kostum sem súrdeigsbrauð býr yfir.

Í Myllu súrdeigsbrauðum er 11%-12% súrdeig. Allar nánari upplýsingar um Myllu súrdeigsbrauðin má nálgast hér á Myllu vefnum.

Fáðu þér Myllu súrdeigsbrauð strax í dag. Hvort viltu frekar gróft eða fint?