Fara í efni

Ómótstæðilegt með Heimilsbrauði Myllunnar

15.09.2026

Heimilisbrauð Myllunnar í „French toast“ eða franskt eggjabrauð er klassíkur brauðréttur sem er bæði gómsætur og einfaldur að allri gerð. Þessi franski þjóðarréttur er til í ótal útfærslum á netinu, en Frakkar og taka venjulega um Pain perdu eða „týnda brauðið“ þegar þeir eiga við French Toast.

Með týnda brauðinu er verið að vísa til þess að ekki sjáist vel í brauðið fyrir öllu því girnilega sem fylgir heitri samlokunni, sem útbúa má sem bæði eggjabrauð í grunninn en einnig sem eftirrétt, þá venjulega með kanilsykri eða hlynsírópi. Eggjabrauðið má síðan hafa í morgun-, hádegis- eða kvöldmat - allt eftir því hversu matarmikil samlokan er.

Heimilisbrauð Myllunnar fellur einstaklega vel að þessum fjölbreyttu kröfum franska eggjabrauðsins. Bæði er Heimilisbrauðið einstaklinga bragðgott og næringarríkt og með sneiðar í afar passlegri stærð. Hér á eftir er alveg geggjuð uppskrift á „French Toast“ fyrir þau sem ekki hafa prófað þessa útfærslu og langar að gæða sér á þessari einstöku frönsku snilld með Heimilisbrauði Myllunnar.

Og nú færðu 30% meira af Heimilisbrauði Myllunnar í tilefni af 30 ára afmælinu

4 stk. Heimilisbrauðsneiðar

  • 4 stk. egg
  • 2 dl. rjómi
  • 2 msk. appelsínusafi
  • 1 msk. rifinn appelsínubörkur
  • ½ tsk. kanill
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 1 ½ tsk. hlynsírópi
  • Hnífsoddur salt
  • Íslenskt smjör (til steikingar)

Aðferð:

  1. Pískaðu egg og rjóma létt saman í skál.
  2. Bættu við appelsínusafa, kanil, vanilludropum, salti og hlynsírópi út í og hrærðu vel.
  3. Leggðu brauðsneiðarnar í skálina og snúðu þeim einu sinni við. Leyfðu brauðsneiðunum að liggja í blöndunni í u.þ.b. þrjár mínútur.
  4. Hitaðu smjörið á pönnu við miðlungshita og steiktu brauðsneiðarnar í u.þ.b tvær mínútur á hvorri hlið, eða þar til eggin eru elduð.
  5. Berðu brauðsneiðarnar fram með ferskum ávöxtum að eigin vali og hlynsírópi.