Fara í efni

Páskarnir eru tíminn til að njóta

24.03.2026

Ljúffengar og nánst eins og gerðar til að njóta við hvert tækifæri sem gefst um páskana, smellpassa smáar kökur Myllunnar við páskana, hvort sem þú ert heima að njóta í rólegheitunum eða í bústaðarferð. Eins og nafnið gefur til kynna eru kökurnar smáar, flauelsmjúkar og einstaklega bragðgóðar.

Í hverjum pakka af MylluSmáum er smá möndlukaka, smá súkkulaðikaka, smá sítrónukaka og smá gulrótarkaka. Auðvelt er að grípa þær með sér úr búðinni og kannski vissara að taka nokkra pakka með, svo að allir geti fengið smá köku við sitt hæfi.

Í handhægum umbúðum og alltaf eins og nýbakaðar er síðan auðvelt að reiða MylluSmáar fram, hvort heldur fyrir spilakvöldið eða í göngutúrnum. Þá eru þær afar viðeigandi á kaffiborðið, ekki hvað síst með smá þeyttum rjóma, sé hann í boði fyrir sælkerana.

Fáðu þér MylluSmáar. Fjórar mismunandi gerðir af ljúffengri köku í akkúrat réttri stærð. Páskarnir eru tíminn.  

Hér má nálgast nánari upplýsingar um MylluSmáar