Fara í efni

Pizzastykki í prófalestrinum

18.05.2018

Námshestar á efri skólastigum eru nú komnir á fulla ferð í náminu og þurfa að halda sig vel að verki til að prófalesturinn í vor verði ekki of erfiður. Námsmenn þurfa að borða eins og aðrir og vita að það er fljótlegt að grípa með sér poka af ostaslaufum frá Myllunni til að narta í yfir námsbókunum.

Oft er lítill tími til að velta fyrir sér flókinni nestisgerð að morgni dags, enda ungt fólk oft heldur illa sofið þegar vekjaraklukkan hringir og mun meira freistandi að lúra lengur en að vakna snemma og útbúa flott nesti fyrir skólann.

Þá er gott að vita til þess að hin sívinsælu Pizzastykki frá Myllunni fást í flestum verslunum. Þær eru auðvitað algerlega klassískar fyrir námsmenn.

Ekki gleyma Pizzastykkjunum frá Myllunni þegar þú ráfar um verslunina í stuttum frímínútunum. Gríptu poka með þér og veldu það sem þér finnst best að drekka með.