Fara í efni

Nýjung frá Tertugallerí - Rúllutertubrauð!

11.12.2018

Tertugallerí Myllunnar kynnir enn eina nýjungina í smurbrauðsfjölskyldunni! Rúllutertubrauð með pepperoni og rúllutertubrauð með skinku og aspas fyllingu! Það eina sem þú þarft að gera er að sáldra osti yfir brauðið og skella þeim inn í ofn þangað til osturinn er orðinn gullinbrúnn.

Það skiptir ekki máli vert tækifærið er, gullfallegt og gómsætt rúllutertubrauð frá Tertugalleríinu er alltaf frábær hugmynd. Sparaðu tíma, hafðu það huggulegt og láttu Tertugallerí Myllunnar auðvelda þér fyrirhöfnina fyrir veisluna. Pantaðu strax í dag!

Tertugallerí Myllunnar býður núna uppá
- Rúllutertubrauð
- Brauðtertur
- Smurbrauð
- Tapas snittur
- Kokteilsnittur

Pantaðu tímanlega
Afgreiðslufrestur undir venjulegum kringumstæðum er 2-3 sólarhringar. Hafa ber í huga að afgreiðslufresturinn getur lengst með skömmum fyrirvara og lokast fyrir þá daga í pöntunardagatalinu. Þegar gengið er frá pöntun þarf að velja á hvaða klst. er sótt til okkar í Tertugalleríið í Skeifuna 19.
Til að fá vöru afhenta á laugardegi eða sunnudegi þarf að panta í síðasta lagi fyrir klukkan 16:00 á fimmtudegi, með fyrirvara um að ekki sé búið að loka fyrir pantanir.