01.06.2025

Á þessum hátíðisdegi viljum við hjá Myllunni senda öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra innilegar kveðjur og þakkir. Þið standið vaktina á hafinu í hvers kyns veðrum og aðstæðum svo við hin getum notið íslenskrar matarmenningar og ferskleika úr sjó.
Við hjá Myllunni kunnum að meta traust, elju og þrautseigju sem sjómenn endurspegla dag hvern. Við óskum ykkur gleðilegs sjómannadags, hvort sem hann er haldinn hátíðlegur í landi eða úti á rúmsjó.
Megi dagurinn einkennast af gleði og samverustundum.