Fara í efni

Smáar og nú líka stakar

09.06.2026

Ljúffengu Smáu kökur Myllunnar eru frábærar til að njóta við hvert tækifæri sem gefst. Þær eru nú einnig fáanlegar stakar í einstaklega handhægum og þægilegum umbúðum og klárar í nánast hvaða verkefni sem er.

Það er því tilvalið að hafa stakar smáar með sér - hvort sem þú ert á ferðinni eða heima að njóta í rólegheitunum. Þá getur einnig verið gott að eiga nokkrar í handraðanum, allar í bland eða nokkrar af þeirri sort sem er í uppáhaldi.

Láttu smá eftir þér og gríptu stakar Myllu smáar kökur með í næstu búðarferð. Smáu kökur Myllunnar eru ekki aðeins  smáar, heldur einnig flauelsmjúkar og einstaklega bragðgóðar. 

Í stöku umbúðunum er smáu kökur Myllunnar í boði sem sítrónukaka, súkkulaðikaka og möndlukaka