Brauð er víða hluti af hefðbundnum páskamat, eins og til dæmis á Spáni þar sem Torrijas brauðrétturinn er afar vinsæll um páskana.
Torrijas rekur matarmenningarlegar rætur sínar langt aftur í aldir eða allt aftur til 16. aldar, þegar sykur þótti bókstaflega allra meina bót. Upphaflega var því litið á Torrijas sem staðgóða og nærandi máltíð fyrir ófrískar konur eða fólk sem var að ná sér upp úr veikindum.
Torrijas gæti við fyrstu sýn virst skylt öðrum og öllu þekktari brauðrétti eða „franska ristabrauðinu“, French Toast eins og rétturinn heitir á ensku. Honum er enda oft líkt við spænsku útgáfuna af þeim franska. Það er að mörgu leyti skiljanlegt, þar sem báðir réttir eru að uppstöðu til úr brauði sem velt er upp úr mjólk og steikt á pönnu. Öllu lengra nær þessi heldur misvísandi samlíkingin þó ekki.
Torrijas flokkast undir sætmeti sem gjarnan er haft með síðdegiskaffi eða reitt fram sem eftirréttur. Á það ekki hvað síst við um páska, en víða á Spáni þykir rétturinn ómissandi hluti af hefðbundinni páskamáltíð. Kanill, kardimomma, appelsínubörkur og hunang gegnir mikilvægu hlutverki fyrir bragðheim þessa spænska páskaréttar. Einnig kemur stjörnuanis fyrir í sumum uppskriftum, sem eru til í fjölmörgum útgáfum eins og venjan gjarnan er þegar hefðbundir réttir eiga í hlut. Aðferðin getur sem dæmi verið mismunandi allt eftir því hvort fólk langar borða Torrijas sem heitan rétt eða kaldan.
Má af þessu sjá að Torrijas stendur hvað innihald og bragð varðar frekar langt frá franska ristabrauðinu. Þá hefur Torrijas annan og ekki síður áhugaverðan kost fram yfir þann franska og það er að betra þykir að nota nokkurra daga gamalt brauð, aðallega svo að það geti dregið til sín sem mest af mjókurkryddblöndunni án þess að leysast upp.
Ef þú átt nokkurra daga gamalt brauð, sem er farið að harðna, er alveg gráupplagt að „endurvinna“ í ljúffengt Torrijas. Ef ekki þá er bara að kaupa Myllu Heimilisbrauð og leyfa því að standa utan pokans yfir nóttina.
Áhugasömum er bent á að gúggla Torrijas. Uppsakriftirnar sem birtast eru bæði margar og flottar og um að gera að velja þá sem þér líst best á. Okkur finnst þessi uppskrift sem dæmi lita nokkuð vel út.