Fátt er sumarlegra en grilluð pylsa með öllu og færa má fyrir því gild rök að hún eigi nánast alltaf vel við þegar við gerum okkur glaðan dag á björtum sumarkvöldum.
Þá er fátt íslenskra en pylsa með öllu, og er þessi þjóðarréttur líklega að vera einhver þekktasti réttur landsmanna alþjóðlega, ef marka má umsagnir erlendra ferðamanna hér á landi.
Það breytir því ekki, að gaman getur verið að prófa eitthvað nýtt og fyrir þau sem langar að breyta aðeins til má mæla með rjúkandi borgarpylsu á ameríska vísu.
Í þessari amerísku útgáfu er notuð pylsa að eigin vali, vegna þess að hér er það meðlætið sem mestu skiptir. Það samanstendur af súrsuðum eldpipar (e. jalapeno) eða súrsaðri gúrku (e. relish) eða jafnvel bæði. Það má líka. Við þetta bætist smátt saxaður tómatur, gult sinnep, Heinz chili sósa, hrár laukur og svo auðvitað gott og djúsí pylsubrauð frá Myllunni, sem umvefur pylsuna ásamt meðlætinu og heldur öllu saman.
Þessi uppskrift getur eiginelga ekki klikkað, ekkert frekar en íslensk pylsa með öllu.
Hjá Myllunni stendur valið jafnframt um tvær útgáfur af bragðgóðum pylsubrauðum eða um annars vegar góða gamla pylsubrauðið og hins vegar pylsukartöflubrauðið.
Næst þegar þú kaupir inn, er tilvalið að grípa með sér aðra hvora tegundina eða jafnvel bara báðar til tilbreytingar.