Fara í efni

Taktu frá dag jólatertunnar 24. október

07.10.2022

Á hverju ári ríkir gríðarleg eftirvænting eftir því að jólatertur Myllunnar komi í verslanir en hinn formlegi dagur jólatertunnar er einmitt 24. október.

Við minnum af þessu tilefni líka á Facebook hópinn "Vinir Grænu jólatertunnar" sem vex stöðugt en í hópnum eru núna rúmlega 1700 sérlegir erindrekar þeirrar grænu, sem þau telja bestu jólatertuna.

Jólaterturnar frá Myllunni fást þó í fjórum gerðum, þessi græna klassíska er brún og með smjörkremi, sú bláa er hvít og með sígildri rabarbarasultu, sú hvíta er einnig hvít en með gómsætri sveskjusultu og svo er það sú rauða sem er brún með smjörkremi og hindberjasultu.

Allar eiga terturnar sína dyggu aðdáendur.

Það styttist því í dag jólatertunnar og því er þjóðráð að rýma til í búrskápnum fyrir birgðum af jólatertum. Þau allra hörðust geta búið til pláss í frystikistunni til að eiga lager til langt fram yfir jól!

Takið daginn frá, 24. október er dagur jólatertunnar og smellið hér til að skoða allar jólaterturnar...