Bolludagurinn nálgast óðfluga og nú er hann mánudaginn 16. febrúar. Þá fara flestir Íslendingar af stað og fá sér ljúffenga vatnsdeigsbollu, jafnvel margar! Tertugallerí Myllunnar býður einmitt upp á vatnsdeigsbollur með glassúr, rjóma og hindberjasultu, eða það allra klassískasta sem lang flestir elska. Að auki eru bollurnar á frábæru verði, eða 12 stykki á 7.237 krónur! Hægt er að panta bollurnar hér á vefsíðu Tertugallerísins
Vatnsdeigsrjómabollur frá Tertugalleríinu eru einstaklega ljúffengar og glæsilegar og sérstaklega mjúkar undir tönn. Það er tilvalið að gleðja fjölskyldu, vini, starfsfólk eða viðskiptavini með gómsætum vatnsdeigsrjómabollum á bolludaginn. Við vekjum sérstaka athygli á að bollurnar koma í takmörkuðu magni og seljast alltaf upp, ár eftir ár svo að mikilvægt er að panta tímanlega. Einnig bendum við á að þær er eingöngu hægt að fá afhentar 7.-8. febrúar og 14.-16. febrúar. Það þarf að einnig staðfesta pöntun með greiðslu fyrir kl. 14:00 á fimmtudegi til að fá afhent um helgar en fyrir kl. 14.00 á föstudegi til að fá afhent á mánudegi.
Gleðilegan bolludag og njótið vel!