Fara í efni

Uppáhalds brauð næringarfræðingsins

07.09.2026

Brauð er einföld og næringarrík fæða sem hefur fylgt manninum í þúsundir ára. Mörg brauð eru virkilega næringarrík og hafa ótal marga jákvæða kosti ef maður vandar valið á tegundum. Þau er líka snilldar ferja fyrir allskonar næringarríkt sem gjarnan vantar í mataræðið því hægt er að leika sér með álegg eins og hugurinn girnist. Þar má t.d. nefna baunasmyrjur, grænmeti, ávexti, fisk og margt fleira. Þar að auki er brauð tiltölulega ódýr fljótleg máltíð sem auðvelt er að hafa fjölbreytilega.

 Þegar kemur að því að velja brauð er heilkornabrauð sérstaklega góður kostur. Það er vegna þess að í heilkornabrauði er allt kornið heilt og því fylgja dýrmætar trefjar, vítamín og steinefni sem finnast í mismunandi hlutum kornsins. 

 Regluleg neysla á heilkorni hefur verið tengd minni líkum á hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki 2 og ristilkrabbameini. Þar að auki hafa þau jákvæð áhrif á þarmaflóruna okkar. Þrátt fyrir þessi jákvæðu áhrif borða Íslendingar þó minna af heilkorni en ráðlagt er, en 75% Íslendinga borða ekki nóg af heilkornum. Það helsta sem vantar svo einnig í mataræði Íslendinga samkvæmt mataræðiskönnunum eru trefjar og er einn stærsti næringartengdi þátturinn í sjúkdómsbyrði þjóðarinnar.

 Einn þægilegasti heilkornagjafinn til að grípa til, í dagsins amstri, er hið klassíska heilkornabrauð. Lífskornabrauðin frá Myllunni eru dæmi um góðan heilkorna kost fyrir þá sem vilja auka hlut heilkorna í mataræðinu. Þau eru full af næringarefnum og eru öll skráargatsmerkt en merkið hjálpar neytendum að velja vörur með m.a. meiri trefjum og minni sykri og salti.

 Það gæti líka komið sumum á óvart að brauð innihalda oft þó nokkuð magn af próteini, en hæsta magn próteins í Lífskornalínunni er 13 g í 100 g. 

 Hægt er að velja á milli sex mismunandi tegunda af Lífskornabrauði og hér að neðan má sjá magn próteins og trefja í 100 g:

 1 - Heilhveiti og rúgur                                            Prótein: 12 g   Trefjar 6 g

2 - Sólblómafræ og hörfræ                                    Prótein: 13 g   Trefjar: 6.6 g 

3 - Tröllahafrar og chia-fræ                                    Prótein: 13 g   Trefjar: 5.6 g

4 - Sjö tegundir fræja og korna                              Prótein: 10 g   Trefjar: 7.6 g

5 - Lífskornsbollur, heilt hveitikorn og rúgur           Prótein: 13 g   Trefjar: 7.4 g 

6 - Lífskornsbollur, tröllahafrar og chia fræ            Prótein: 13 g   Trefjar: 5.5 g

 Með þessum brauðum er því hægt að skapa ódýrar, fljótlegar, bragðgóðar og fjölbreyttar máltíðir, hvort sem það er heima eða gripið með í nesti. Síðustu tvö er svo tilvalið að prófa að nota sem hamborgarabrauð fyrir næringarríkari kost.

 Með fjölbreyttu úrvali Lífskornabrauða er auðvelt að hafa heilkorn, trefjar og fræ sem reglulegan hluta af mataræði. Sem næringarfræðingur er ég mjög hrifin af Lífskornabrauðunum og mæli eindregið með þeim fyrir þá sem vilja auka neyslu á heilkorni og fá um leið fleiri mikilvæg næringarefni inn í mataræðið.

 Fleiri næringarfróðleik frá Guðrúnu má finna hér