Fara í efni

Uppskrift frá Mömmur.is: Humarkartöflubrauð á grillið

26.05.2026

Hér er önnur frábær uppskrift frá henni Hjördísi hjá Mömmur.is, en hún er snillingur í að töfra fram allskonar góðgæti sem slær í gegn, hvort sem það er í matarboðum, veislum eða í góðum fjölskyldukvöldverð. 

Humarkartöflubrauð á grillið 

Ljúffengur forréttur sem gleður alla!

Það er alltaf gaman að byrja veisluna með forrétti sem slær í gegn. Þetta humarkartöflubrauð er einstaklega bragðgott, einfalt í undirbúningi og kemur glæsilega út þegar það er grillað og borið fram heitt.

Þetta þarftu:

(Fyrir 8 stk)

  • 8 stk pylsukartöflubrauð frá Myllunni

Fylling:

  • 250 g smjör – brætt
  • 5 hvítlauksgeirar – pressaðir
  • ½ rauðlaukur – skorinn mjög smátt
  • 20 g graslaukur – saxaður
  • 1–2 tsk steinselja (þurrkuð eða fersk)
  • 2 tsk gróft salt
  • 1½ tsk hvítlauksblanda eða kryddblanda með hvítlauk
  • Börkur af ½ sítrónu – rifinn fínt

Aðferð:

  1. Bræðið smjörið og blandið öllu hráefninu saman í pott og hitið 
  2. Hellið smjörblöndunni yfir hamfletta humarbita og leyfið humrinum að taka í sig bragðið. 
  3. Setjið humarbitana á spjót, penslið meira smjöri yfir og grillið í ca. 1 ½ mínútu á hvorri hlið við um 200 gráða hita þar til þau verða stökk, ilmandi og gyllt.  
  4. Penslið fyllinguna vel ofan í hvert kartölfubrauð og grillið þar til brauðin verða stökk, ilmandi og gyllt. 
  5. Setjið mæjónes, 1-2 spjót af humarbitum í hvert kartölfubrauð, smyrjið heitri smjörblöndu yfir humarinn, kreistið sítrónusafa yfir, meira mæjónes og steinselju ofan á.  
  6. Berið fram heit – t.d. með sítrónubátum, snakki, fersku salati eða einfaldri sósu.

 Ráð: Þú getur bætt við smá rifnum osti eða jafnvel humarbitum ef þú vilt gera þetta að lúxusútgáfu!

Fullkomið í sumarboðið, tapas-kvöldið eða sem flottur forréttur við grillmatinn!