Fara í efni

Veldu Lífskorn fyrir ferðalagið í sumar

08.06.2025

Útilega

Sumarferðalögin eru tíminn þar sem við viljum njóta náttúrunnar, slaka á með fjölskyldunni og hafa nesti sem bæði er hollt og gott. Hvort sem ferðinni er heitið í útilegu, í fjallgöngu, í sumarhús eða í fjöruferð með börnin, þá er Lífskorn fullkominn félagi í nestistöskuna.

Það er sérstaklega sniðugt að smyrja samlokur með Lífskornabrauði fyrir ferðalagið, hvort sem það er með osti og skinku, avókadó og eggi eða hummus og grænmeti. Brauðið heldur sér vel, er trefjaríkt og gefur góða orku fyrir ferðaævintýrin sem eru framundan. Lífskornasamlokur eru einfaldar í undirbúningi og henta vel til að grípa með sér í bílinn, í bakpokann eða í nesti fyrir alla fjölskylduna.

Lífskornalína Myllunnar inniheldur sex mismunandi tegundir af brauði og í henni finnur þú góðu frækornin, trefjarnar, próteinið og einstök bragðgæði. Lífskorn er því tvímælalaust trefjagjafi þinn og fræsafn þitt. Lífskorn hefur hátt hlutfall heilkorns, með lágt fituhlutfall og inniheldur lítið af joðbættu salti, auk þess að innihalda B- og E-vítamín og steinefni sem líkaminn þarfnast. Þar að auki bætist heilkorna Lífskorn á lista joðgjafa og D-vítamínríkra fæðutegunda. Með Lífskorni ertu í góðum höndum þegar kemur að næringu og gæðum í sumar. Taktu Lífskorn með í næstu ferð og njóttu sumarsins með léttum huga og góðu nesti.

Hægt er að velja um sex mismunandi tegundir af Lífskornabrauði í Lífskornafjölskyldunni.

Lífskorn, sjö tegundir af fræjum og kornum sem er fjölbreytt og trefjaríkt brauð sem hentar vel með osti, hummus eða jafnvel sem grunnur í létta ferðasamloku.

Lífskorn, heilt hveitikorn og rúgur er klassískt og saðsamt, frábært með smjöri og osti eða hnetusmjöri og banana fyrir orkuskot.

Lífskorn, sólblómafræ og hörfræ er mild og holl blanda sem nýtur sín vel með fersku áleggi eða sem meðlæti með súpu á köldum sumarkvöldum.

Lífskorn, tröllahafrar og chia-fræ er trefjaríkt og mettandi, fullkomið fyrir göngudaga þar sem orkan þarf að endast lengi.

Lífskornabollur, tröllahöfrar og chia-fræ eru mjúkar og bragðgóðar bollur sem eru tilvaldar í morgunmat eða sem létt millimál.

Lífskornabollur, heilt hveitikorn og rúgur hentar vel fyrir börn og fullorðna eins og með smá osti eða áleggi að eigin vali.