Mundu eftir nestinu um verslunarmannahelgina. Góð ferðalög verða enn betri sé gott nesti með í farteskinu.
Mörg veljum við að eiga góðar stundir á Íslandi yfir hásumarið og ferðast frekar til útlanda þegar hausta tekur. Hér kemur eflaust við sögu, að íslenskar sumarnætur eru, þegar vel viðrar, alveg einstakar og uppspretta margra góðra minninga.
Góð ferðalög verða enn betri, sé maður vel nestaður og langar okkur að gauka að viðskiptavinum Myllunnar nokkrum góðum hugmyndum að frábærum nestisbitum fyrir ferðalagið, útileguna - eða hvert sem leiðin nú liggur um Versló.
Pizzasnúðarnir, pizzastykkin og ostaslaufurnar frá Myllunni hafa notið mikilla vinsælda hjá fólki á ferðinni enda um ómótstæðilega nestisbita að ræða og afar handhæga þegar svengdin sækir. Það tekur enga stund að snara þessu góðgæti fram, hvar sem er og hvenær sem er, sem telst ótvírætt mikill kostur á ferðalagi.
Kleinurnar frá Myllunni eru sígildar og slá alltaf í gegn hjá öllum aldurshópum ásamt smáu kökunum okkar - sem segja má að séu jafnvel ómissandi fyrir fullorðna fólkið með rjúkandi heitu kaffi beint úr kaffibrúsanum. Það skemmtilegasta við smáu kökurnar er að þær eru nú fáanlegar bæði stakar og fjórar saman í pakka með sítrónu-, möndlu- eða súkkulaðibragði. Þær eru alltaf flauelsmjúkar og ljúffengar og til marks um það góða handverk sem handverksbakarar Myllunnar standa fyrir.
Ef þú ætlar að leggja land undir fót um Versló, mundu eftir nestinu og grípu með þér frábæra nestisbita frá Myllunni í innkaupunum fyrir ferðalagið.