Fara í efni

Viltu körfu, skál eða er sú sígilda best?

17.03.2026

Fátt er tignarlegra á fermingarveisluborði en fagurlega skreytt kransakaka. Svo á þessi sígilda veislukaka bara svo vel hátíðlegt tilefni fermingarinnar. Aðrir og ekki síðri kostir eru þó í boði, eða kransakarfa og kransaskál, sem opnar á ýmsa skemmtilega möguleika og útfærslur - allt eftir stærð veislunnar.

Sem dæmi um mismunandi útfærslur, þá mætti í stað einnar kransaköku hafa tvær kransakörfur, hvora á sínum borðsendanum. Fyrir stærri veislur mætti síðan bæta einni kransaskál við kransaköku eða hafa tvær kranskörfur með einni kransaskál. Möguleikarnir eru margir og fara í raun aðeins eftir því hvað hentar hverjum og einum. Það eina sem þú þarft að gera er að ákveða hvort þetta verður karfa hjá þér eða skál eða sú sígilda.

Við viljum síðan minnum á að panta tímanlega og njóta af fremsta megni þess að undirbúa veisluna. Afgreiðslufrestur getur lengst eftir því sem gengið er frá pöntun með skemmri fyrirvara.

Kynntu þér pöntunar- og afgreiðslutíma Tertugallerís Myllunnar