Jólatertur Myllunnar njóta mikilla vinsælda, ekki hvað síst nú þegar dagarnir eru að verða sífellt styttri og kaldari, enda fátt notalegra í skemmdeginu en gæða sér á þessum gómsætu tertum. Flestir eiga sér líka sína uppáhalds tertu, hvort sem hún er græn, hvít, rauð eða blá. Af þessum fjórum gómsætu útgáfum, er sú græna jafnframt sýnu vinsælust, en segja má að hún hafi verið að síga jafnt og þétt fram úr hinum á undanförnum árum.
Það leiðir svo aftur hugann að því, hvað skyldi vera vinsælast að drekka með Jólatertu Myllunnar. Svo skemmtilega vill til að Myllan gerði fyrir nokkru könnun á því, reyndar óformlega, en niðurstöður ættu þó engu að síður að gefa haldgóðar vísbendingar um vinsælasta drykkinn.
Skemmst er frá því að segja að vinsælast er að drekka ískalda mjólk með jólatertunni, en tæplega helmingur þeirra sem tóku þátt sögðu það uppáhalds drykinn sinn. Í öðru sæti var rjúkandi heitt kaffi, með um 25% svarenda og í því þriðja með um 13% svarenda heitt súkkulaði með vænni skeið af þeyttum rjóma.
Þá ráku kakó, Malt & Appelsín eða eitthvað annað lestina með um 5% hver möguleiki. Samanlagt slaga samanlagðar vinsældir heita súkkulaðisins og kakósins því hátt í kaffið. Nokkru máli virðist jafnframt skipta hver drykkurinn er eftir því hver af jólatertunum á í hlut. Brúna jólatertan skorar þannig hlutfallslega hærra á köldu mjókinni en hinar gerðirnar.
Fáðu þér þér þína uppáhalds jólatertu og finna hvað þér finnst best að drekka með henni.