Fara í efni

Ljúffengur heitur brauðréttur

30.03.2017

Nú er fermingatímabilið hafið og undirbúningur veislunnar í hámarki. Margir kjósa að halda kaffisamsæti til að fagna áfanganum. Við mælum með veitingunum frá Tertugallerí. Eitt er þó ekki hægt að fá hjá vinum okkur þar og það eru heitir réttir sem eru ómissandi í hverja góða veislu. Hér veitum við uppskrift að ljúffengum einföldum heitum rétti sem slær í gegn.

Heimilisbrauð frá Myllunni leikur hér stjörnuleik og majónesið sem er svo ómissandi í heitum réttum er ekki langt undan. Aðeins tekur um 40 – 50 mínútur að gera þennan gómsæta rétt og þar af er hann 30 mínútur í ofninum og þá er hægt að snúa sér að öðru á meðan.

Skinku og aspas brauðréttur

Uppskrift
1 - 1 1/2 Heimilisbrauð 
1 skinkubréf
1 dós grænn aspas
1/2 askja sveppir 
1 dós beikon smurostur
3 msk majónes
1 – 2 dl matreiðslurjómi
1- 1 1/2 poki af gratínosti


Aðferð:
Skerið skorpuna af brauðinu og skerið í litla teninga. Skerið skinkuna í litla bita og sveppina í sneiðar. Hellið aspasvökvanum frá aspasinum og setjið til hliðar. Aspasinn er skorinn í litla bita. Skinkan og sveppirnir eru steiktir upp úr smjöri. Beikonostur, aspasvökvi, majónes og smá matreiðslurjómi er hitað í potti þar til allt hefur blandast vel saman. Blandan má ekki vera of þykk. Til að þynna blönduna þarf að bæta matreiðslurjóma saman við. Skinka, sveppir og aspas er sett saman við blönduna. Smyrjið eldfast mót og setjið brauðteningana í mótið. Blöndunni er hellt yfir brauðið og osti sáldrað yfir.

Hitið í 30 mínútur við 180 °C hita.