Fara í efni

Morgunverðarbeygla með lárperu (avocado)

16.05.2023

Samsölu beyglur geta þjónað margs konar tilgangi og eru fyrir margra hluta sakir þægilegar þar sem það er hægt að eiga þær í frysti og grípa til þeirra og leyfa einfaldleikanum í eldamennskunni að ráða för.

Beyglurnar eru tilvaldar í koma sér af stað á morgnanna, geta verið ljúffengar með góðu áleggi í hádeginu og þær eru ekki síður hentugar með kaffinu í eftirmiðdaginn eða sem góð kvöldmáltíð eða snarl að kvöldi til.

Við hvetjum fólk almennt að fara gætilega að því að skera frosnar vörur, hvort sem það eru beyglur eða önnur matvæli og eitt sem við viljum benda á þegar verið er að bjóða upp á beyglur er að nota ekki beitt áhald til að aðskilja helminga beyglunnar. Best er að þíða beygluna við stofuhita í 20 til 30 mínútur eða lengur áður en helmingar eru aðskildir og beyglan ristuð, það er einnig hægt að setja beygluna í örbylgjuofn á affrystistillingu í u.þ.b. 20 sekúndur (misjafnt eftir ofnum).

Af hverju eru beyglurnar ekki skornar alveg í gegn?

Þeirri spurningu hefur verið kastað fram hvort ekki sé hægt að skera beyglurnar alveg í gegn. Ef beyglurnar væru skornar alveg í gegn þyrfti að handpakka þeim í umbúðirnar og yrði það kostnaðarsamt sem myndi hækka verðið til neytenda. Vegna kostnaðarhagræðis eru beyglunum vélpakkað í dag en vélin getur ekki tryggt að toppur og botn raðist alltaf saman ef helmingarnir væru lausir.

Morgunverðarbeygla með lárperu (avocado)

2 Samsölu beyglur af eigin vali

2 Lárperur (avocado)

4 msk. rjómaostur

2 sítrónusneiðar

Salt og pipar (eftir smekk)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að taka beyglurnar úr frystinum og leyfið þeim að þiðna í u.þ.b. 20 mínútur.
  2. Stillið ofninn á 200 gráður (blástursofn) eða setjið beyglurnar í brauðristina. Beyglurnar sem eru hitaðar í ofninum þurfa að vera í u.þ.b. 10 mínútur.
  3. Leggðu lárperurnar á skurðarbretti og skerðu yfir þær miðjan og taktu þær varlega í sundur. Þrýstu svo á neðsta hlutann til að steinninn losni og skafðu svo innan úr lárperunum. Þið getið skorið lárperurnar annaðhvort í bita eða stappað þeim saman.
  4. Þegar beyglurnar eru tilbúnar takið þið þær varlega í sundur og smyrjið báða beygluhelmingana með rjómaostinum.
  5. Dreifið lárperunum yfir rjómaostinn og stráið salti og pipar eftir smekk.
  6. Í lokin kreistið þið sítrónusneiðarnar yfir beygluhelmingana, berið svo loks fram og njótið!