Kjötsúpa er ein af þessum réttum sem færir okkur notarlega hlýju þegar það kólnar úti. Þessi klassíska, íslenska súpa er alveg fullkomin fyrir haustið. Þessi ilmandi máltíð er jafnframt með skýran bragðheim sem á einstaklega vel við íslenskt nýupptrekið grænmeti og kartöflur.
Þessi hefðbundni íslenski matur er því í senn ljúffeng og næringarrík. Þú færð fjölbreytt úrval af vítamínum, steinefnum og próteinum með blöndu af lambakjöti, kartöflum, gulrótum, rófum og öðrum grænmeti í einni máltíð. Lambakjöt er ríkulegt af próteini og járni, en grænmetið bætir við trefjum og nauðsynlegum næringarefnum. Saman skapar þetta rétt sem bæði fyllir og hitar líkamann á köldum haustdögum.
Þá er það ekki síður mikill kostur við kjötsúpu, hversu einfalt er að útbúa hana. Þú þarft aðeins nokkur einföld hráefni sem eru auðveld í matreiðslu og flestir eiga til í eldhúsinu. Það besta er , að súpan er jafn góð daginn eftir og sumir segja að hún verði jafnvel betri þegar hún hefur fengið að standa. Þetta gerir hana frábæra fyrir fólk sem vill elda stóran skammt og eiga afgang.
Kjötsúpa er jafnframt fjölbreyttur réttur sem hægt er að útfæra á ýsma lund, allt eftir smekk hvers og eins. Fyrir þá sem kjósa grænmetisútgáfu er einfalt að sleppa kjötinu og bæta við meira grænmeti, eins og sveppum eða baunum, fyrir aukna fyllingu. Þannig er auðveldlega hægt að aðlaga súpuna að mismunandi matarvenjum án þess að missa einstakan karakter. Smelltu hér ef þig vantar góða uppskrift að klassískri kjötsúpu
Lífskorn er síðan alveg tilvalið sem hollt og gott meðlæti með kjötsúpunni. Lífskornalína Myllunnar inniheldur átta mismunandi tegundir af brauði og í henni finnur þú góðu frækornin, trefjarnar, próteinið og einstök bragðgæði. Bragðaðu öll brauðin og veldu þitt uppáhalds Lífskorn sem meðlæti með kjötsúpunni, en hægt er að velja um átta mismunandi tegundir af Lífskornabrauði í Lífskornafjölskyldunni.
- Lífskorn, sjö tegundir af fræjum og kornum
- Lífskorn, kolvetnaskert
- Lífskorn, D-vítamínríkt, heilkorn og graskersfræ
- Lífskorn, heilt hveitikorn og rúgur
- Lífskorn, sólblómafræ og hörfræ
- Lífskorn, tröllahafrar og chia-fræ
- Lífskornabollur, tröllahöfrar og chia-fræ
- Lífskornabollur, heilt hveitikorn og rúgur
Fáðu þér Lífskorn strax í dag.