Fara í efni

Dekraðu við makann þinn á konudaginn með Lífskorni!

19.02.2021

Upphaf Góu er á næsta leiti, konudagurinn. Dekraðu við makann þinn á konudaginn og gerðu þitt eigið sérstaka smurbrauð með Lífskorni! Sérstaða smurbrauðsins felst í listilega smurðu opnu brauði þar sem áleggið fær að gæla við augað.

Það hefur lengi verið siður og mikill áhugi hefur verið á Íslandi að gera smurbrauð með bragðgóðu litríku fallegu áleggi. Við tókum upp þann sið frá danmörku þar sem smurbrauð kallast „smørrebrød“ og er helsta framlag Dana til matarmenningar heimsins.

Við hjá Myllunni höfum tekið skrefið aðeins lengra með því að gera gott enn betur með Lífskorna brauði. Með ferskum og gómsætum áleggstegundum er hægt að gera Lífskornabrauðið að bragðgóðu fallegu smurbrauði. Lífskornabrauðið er einnig frábær kostur fyrir þá sem velja hollt smurbrauð.