Fara í efni

Gleðilegt ferðasumar

01.07.2026

Undirbúningur fyrir ferðalög sumarsins stendur líklega sem hæst hjá mörgum og mikil tilhlökkun komin í mannskapinn. Förum vel nestuð inn í ferðasumarið með valin Lífskornabrauð Myllunnar í farteskinu, sneisafull af hollustu og næringarríkri orku.

Einn mikilvægasti liðurinn í undirbúningnum er að leggja vel nestaður af stað og þar getum við heilshugar mælt með næringarríku Myllu Lífskornabrauðunum, ekki hvað síst heilnæmu Lífskornabollunum okkar. Þær henta mjög vel í ferðalagið og eru einstaklega ljúffengar með bragðgóðu og hollu áleggi á milli. 

Lífskorn færir þér máltíð af akrinum, sneisafulla af mikilvægum fjörefnum og steinefnum. Hvort sem leiðin liggur upp í bústað eða í útileigu, þá er gott að huga að heilsunni og hollustu í sumarfríinu. Þá er Lífskorn ekki síður frábær trefjagjafi, með hátt hlutfall heilkorns, lágt fituhlutfall og lítið af salti. 

Gríptu með þér Lífskornabollur eða Lífskornabrauð í næstu verslun. Þá eru Lífskornabollurnar okkar einnig fáanlegar með tröllahöfrum og chia fræjum fyrir enn meiri náttúrulega næringu. Öll Lífskornabrauðin eru vegan. 

Við óskum landsmönnum öllum gleðilegt ferðasumar. Förum varlega í umferðinni og munum að hafa það gaman alla leiðina.