Holl og fjölbreytt fæða er mikilvæg fyrir heilsu og vellíðan. Við erum þess vegna hvött til að hafa fjölbreytni í fyrirrúmi og velja matvæli sem eru rík af næringarefnum frá náttúrunnar hendi, eins og heilkorn og annað gróft kornmeti.
Heilkornabrauð eru sneisafull af mikilvægum næringarefnum eins og jáni, sinki, E-vítamíni og fólati. Þá eru heilkornabrauð ein mikilvægasta uppspretta trefja í daglegri fæðu hjá okkur, sem gerir þau að ómissandi hluta fyrir meltinguna og upptöku líkamans á næringarefnum. Í ráðlegginginum landlæknis á mataræði kemur enda fram að rífleg neysla á heilkorni og heilkornavörum dregur úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum, áunninni sykursýki og ýmsum tegundum krabbameina.
Lífskornabrauð Myllunnar mynda heila fjölskyldu af þessum góðu og meinhollu heilkornabrauðum. Þau eru fáanleg í fimm mismunandi tegundum, en auk þeirra fellur speltbrauð Myllunar einnig undir heilkornaflokkinn ásamt Danska rúgbrauðinu.
Þeim er því í lófa lagið, sem vilja breikka heilkornaneysluna hjá sér, að skipta lífskornabrauðunum niður á vikudagana. Lífskorn með sjö tegundum af fræjum og kornum er sem dæmi tilvalið á sunnudögum, á meðan rauð Lífskornabrauðið í rauðu umbúðum með lága hlutfallinu af fitu, sykri og salti á vel við á mánudögum, og þannig koll af kolli.
Kynntu þér þennan góða og meinholla brauðkost og nærðu líkama og sál með heilkornum á borð við sólblomafræ, hörfræ og tröllahafra eða íslenskt bygg beint frá Þorvaldseyri í Lífskorni frá Myllunni.