Smáar Jólakökur Myllunnar hafa fengið allt það besta í arf frá grænu jólatertunni og meira til. Með þetta einstaka jólakryddbragð og mjúkan kremtopp að auki, eru þessar jólalegu smáu kökur alveg einstakar í sinni röð.
Smáu Jólakökur Myllunnar eru hluti af ómótstæðilegum jólavörum Myllunnar. Handhægt piparkökudeig Myllunnar gerir þér kleift að töfra fram á örskotsstundu nýbakaðar piparkökur, sem fylla vitin sætri jólaangan. Svo eru þær bara svo góðar ylvolgar úr ofinum með ískaldri mjólk.
Jólatertur Myllunnar eru fyrir löngu orðnar ómissandi í aðdraganda jóla. Þær eru sem kunnugt er fáanlegar í fjórum mismunandi útgáfum, eða grænni, blárri, hvítri og rauðri og eru allar jafn góðar, að þeirri grænu undanskilinni sem sumum þykir aðeins betri. Það er þó engan veginn einhlítt og ef þú hefur ekki prófað þær allar, þá má mæla með því að taka eina fyrir í einu og kanna um leið hvað þér þykir best að drekka með hverri gerð.
Við kynnum síðan með stolti smáar grænar jólakökur Myllunnar með kremi. Algjörlega ómótstæðilega jólalegar og fást bæði einar sér eða fjórar saman í bakka.